SKILAREGLUR IPOLISH

Við vonum að þú sért ánægð(ur) með kaup þín hjá iPolish, Inc. („iPolish“).  Ef þú ert hins vegar ekki hundrað prósent ánægð(ur) með einhverja iPolish-vöru sem keypt var í netverslun okkar geturðu sent hana aftur til okkar gegn inneign í netversluninni eða fengið vöruna sem skilað var að fullu endurnýjaða.  Viðskiptavinir sem búa utan samliggjandi 48 ríkja Bandaríkjanna eiga ekki rétt á úrræðum samkvæmt þessum skilareglum.  iPolish tekur ekki við vöruskilum vegna vara sem keyptar eru hjá þriðja aðila, dreifingaraðila eða smásala – vinsamlegast hafðu beint samband við dreifingaraðilann eða smásalann.  Sjá nánari upplýsingar um skilareglur okkar hér að neðan. 

 

Ef þú hefur samband við okkur á info@iPolish.fashion eða fyllir út beiðni um vöruskil á vefsvæði iPolish innan þrjátíu daga frá kaupum, sendum við þér með ánægju fyrirframgreiddan skilamiða í tölvupósti svo þú getir sent vöruna aftur til okkar hvar sem er innan samliggjandi 48 ríkja Bandaríkjanna.  Athugaðu að beiðnir um vöruskil sem iPolish berast innan þrjátíu daga frá kaupum veita eingöngu rétt til inneignar í netverslun eða varaskipta, að mati iPolish.

 

Til að skila vöru skaltu setja hana tryggilega í upprunalegar umbúðir og loka henni í bólstraðum umslögum eða litlum kassa ásamt kvittun eða öðrum sönnunargögnum um kaup.  Festu síðan fyrirframgreidda skilamiðann á sendinguna og skilaðu henni til tilgreinds flutningsaðila. 

 

Eftir að við höfum tekið við skilasendingunni þinni og skoðað ástand vörunnar eða varanna sem skilað var látum við þig vita hvort skilin hafi verið samþykkt.  Vinsamlegast gerðu ráð fyrir tíu virkum dögum frá móttöku vörunnar þar til skilin hafa verið afgreidd.  Við látum þig vita með tölvupósti hvort skilin hafi verið samþykkt og, ef svo er, hvenær þú getur átt von á inneign í netversluninni eða varavöru, eftir því sem við á.  Ef skilin eru samþykkt og þú hefur óskað eftir varavöru eða varavörum sendum við þær til
þín án endurgjalds (innan samliggjandi 48 ríkja Bandaríkjanna).  Ef skilin eru ekki samþykkt geturðu óskað eftir því að varan sem skilað var verði send aftur til þín á þinn kostnað.

 

Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi skilareglur okkar skaltu hafa samband við okkur á: info@iPolish.fashion eða iPolish.fashion.

 

Til að fá áfyllingar eða aukahluti skaltu fara á iPolish.fashion eða
versla í uppáhaldsversluninni þinni sem selur iPolish®-vörur.  Takk fyrir traust þitt og stuðning.